Ég hef síðustu vikuna birt tvær greinar á jafnréttisvefnum http://www.knuz.is. Það eru sindrandi skemmtilegar greinar á knúzinu og mér er heiður að því að fá að drepa þar niður penna. More…
Mánaðarleg afrit: október 2011
Um falskar minningar 2
Þjóðkirkjan sem stofnun hefur misst traust sem hún áður naut. Því teljum við særandi að starfandi prestur í Þjóðkirkju Íslands skuli draga reynslu Guðrúnar Ebbu í efa í blaðagrein. Þjóðkirkjan þarf að endurvinna traust með faglegum vinnubrögðum og af nærgætni við það hugrakka fólk sem opinberar reynslu sína af kynferðisafbrotum. Við teljum grein starfsbróður okkar ekki gott veganesti á þeirri vegferð. More…
Undanlit, eftirlit og Guðrún Ebba Reply
Frásögn Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur Ekki líta undan kom á sunnudaginn og kallar á tvenns konar uppgjör. Í bókinni sem og Kastljósviðtali á dögunum segir hún frá af háttvísi, skýrleika og án hefndar. Guðrún Ebba segir sögu sína í forvarnarskyni. Hún hefur leitað sér hjálpar hjá sálfræðingi, fjölskylduráðgjafa og Stígamótum og það liðsinni hefur staðið allar götur frá því að hún hóf að gera upp sín mál fyrir átta árum. Saga Guðrúnar Ebbu kallar á persónulegt uppgjör um hvort lesandinn treysti sögu hennar og þeim stuðningsaðilum sem standa við bakið á henni og síðan í framhaldinu hvernig lesandinn muni taka á öðrum frásögnum af ofbeldi gegn börnum sem koma upp í umhverfi sínu. More…