Sérþjónustan er eitt af mikilvægustu svörunum okkar við áskorunum borgvæðingarinnar. Það væri ekki nóg að fjölga prestum í hinum staðbundnu söfnuðum í borginni. Borgarfólk lifir svo stórum hluta hvers dags utan heimilis og utan síns heimahverfis og félagsleg tengsl þeirra eru þvert á öll sóknarmörk. Þess vegna getur þjónustan og tengslamyndunin ekki einskorðast við hina landfræðilegu sókn eins og áður var. Það þarf að mæta fólki þar sem það er og það er það sem sérþjónustan leitast við að gera. Sérþjónustan sinnir líka fólki á landsvísu og þannig njóta dreifbýlissöfnuðirnir hennar líka. Ef til vill er mikilvægasta ástæða þess að standa vörð um sérþjónustuna að velflest þau sem hún þjónar standa ekki styrkum fótum í samfélaginu og geta ekki varið hana sjálf. More…
Mánaðarleg afrit: febrúar 2012
Eftirlaun biskupa 1
Í dag barst mér góð spurning sem tengist því að ég gef einungis kost á mér til skamms tíma. Spurningin er um eftirlaun biskupa og fjallar um það hvort biskupar sem láta af störfum á besta aldri geti lifað hamingjusamir til æviloka á uppsprengdum eftirlaunum á kostnað kirkjunnar eða almennings. Svarið er nei. Biskupar njóta ekki eftirlauna á sama hátt og forseti Íslands, ráðherrar, alþingismenn og hæstaréttardómarar.
More…
Hjartaspjöld og mannauður 2
Starfsmannastefnan er óendanlega mikilvæg og við eigum að flagga henni, glíma við hana, uppfæra hana og fara eftir henni. Starfið er til vegna boðskaparins og stjórnsýslan er til svo að starfið sé gott. Ég tel að það eigi að vera forgangsmál nýs biskups að endurskoða starfsmannastefnuna í samtali við þau sem þjóna í kirkjunni. Í þetta skiptið þurfum við að láta það fylgja með hvernig stefnunni verði best framfylgt. More…
Paradís Reply
Og því er Paradís útópía, enginn staður og allur staður. Hún er allur staður vegna þess að frumþarfirnar eru okkur mikilvægar. Vatnið, andardrátturinn, fæðan, líkaminn eru undirstaða þess að við getum lifað heilbrigðu lífi. Og við gerðum vel í því á þessari föstu að velta því fyrir okkur hversu fá okkar hafa aðgang að slíkum gæðum. Það eru svo margir sem hafa helsta tengingu við náttúruna í óhreina pollinum á götunni, svo margir sem ekki eiga vatn og mat eða búa við sæmilegt öryggi. Í samanburði við þorra mannkyns búum við á Íslandi í Paradís, eða að minnsta kosti eins nálægt hliðinu sem engillinn gætir eins og kostur er. Paradís er hinn altæki staður vegna þess að öll látum við freistast eins og konan sem heitir Líf og maðurinn sem heitir Jörð. More…
