rúgbrauð

Rúgbrauðsuppskrift Helgu Svönu Reply

Ég er að baka seytt rúgbrauð eftir uppskrift tengdamömmu minnar, Helgu Svönu Ólafsdóttur. Ég get óhikað mælt með þessu brauði. Deigið er hrært í höndum eða í hrærivél. Rúgbrauðið baka ég í heilu lagi í steikarpottinum mínum, en það er líka hægt að nota mjólkurfernur eða bakstursform. Brauðið er bakað í fjóra tíma á þessum hita en síðan er hitinn lækkaður niður í 110 gráður og brauðið bakað í 4-5 tíma í viðbót. Ef þið eigið brauðvél er líka hægt að helminga uppskriftina, stilla á kerfi fyrir gróft brauð og skella bakstursforminu svo í heilu lagi í ofninn á 110 gráður í fjóra tíma eftir að brauðvélarbaksturinn er búinn til að seyða brauðið. More…

marygrail

María Magdalena- lærisveinninn sem Jesús elskaði? Reply

Ég er dálítið heilluð af þeirri hugsun að lærisveinninn sem Jesús elskaði sé óræður og að í versinu felist orðaleikur. Í þeim orðaleik læðist María Magdalena inn og út úr hlutverkinu í öllum sínum gervum. Guðspjallið um lærisveininn sem Jesús elskaði færir okkur boðskap sem er alger andstæða þessarar áherslu á einangrun lands, þjóðar, menningar og trúar sem fram kom í gjörðum og atburðum í Útey. Ef Jesús elskar alla og allir geta verið lærisveinninn sem Jesús elskaði þá elskar Jesús án tillits til litar, kynþáttar, þjóðernis, trúarbragða, kynhneigðar og kynferðis. More…