Kennsla

Ég hef  kennt guðfræði í Bandaríkjunum, Englandi og á Íslandi. Og svo er ég að vinna að 30 ECTS diplómu í kennslufræði við HÍ sem ég lýk vorið 2012. Kennslufræðin hefur opnað mér nýja innsýn á það hvernig hægt er að miðla þekkingu á 20 öld.

Hér er kennsluferilsskráin mín:

2008- dato: Stundakennari við Guðfræði- og trúarbragðadeild Háskóla Íslands

  • Kenndi námskeiðið “GFR 202G Trúarheimspeki” (5 ECTS) á vormisseri 2012.
  • Hannaði og kenndi siðfræðinámskeiðið “ GFR 320G Hjónabandið og Fjölskyldan” (8 ECTS)  á haustmisseri 2010.
  • Tók þátt í að kenna nemendum “Prédikunarfræði” til embættisprófs í guðfræði vormisserin 2008 og 2009.
  • Hef leyst af í námskeiðum um umhverfissiðfræði og kynlífssiðfræði og verið gestakennari í námskeiðum um kirkjufræði.

2007-2008: Lektor (Lecturer) og verkefnastjóri (Programme Director) í guðfræði við University of Winchester, Winchester, Bretlandi (40% starf)

  • Kenndi, gaf einkunnir og sá um námskeiðin “Identity, Equality, Diversity” sem fjallar um jafnrétti í bresku samfélagi, “ “Introducing Sacred Texts” um hina gyðing-kristnu helgirit lesin með augum femínískrar guðfræði, “Sexuality and the Sacred,” “Nature and Religion” og “Christian Mysticism” sem sömuleiðis eru lesin með aðferðum kynjafræðinnar.
  • Kenndi námskeiðið “Green Faith” sumarið 2008 í Mastersprógramminu í  Christian Spirituality, Sarum College, Salisbury, Bretlandi, með sérstakri áherslu á miðaldadul kvenna og ekófemínísma en prógammið í Salisbury er tengt University of Winchester. Ég kenndi námskeiðið síðan aftur 2010 á sama stað.
  • Sem verkefnastjóri vann ég að tvenns konar diplómum í guðfræði og trúarbragðafræði, “Church School Certificates” fyrir kennara sem vilja afla sér starfsréttinda í kristinfræðikennslu í skólum sem tengjast anglikönsku kirkjunni og  “Church College Certificate in Theology and Religious Studies (CCCTR)” fyrir námsmenn sem ekki hafa fullnægjandi námsgráðu til að setjast í háskóla og nýta sér diplómuna til að brúa bilið. Vann við að skrifa kennslulýsingar fyrir 8 námskeið um hin ýmsu fræði, s.s. “Vistguðfræði: Náttúra, umhverfi og hin kristna hefð,” “Siðfræði og Biblían” og “Menning og Mýstík.”
  • Fulltrúi deildarinnar í Research and Knowledge Transfer Committee háskólans.
  • Tók þátt í að skipuleggja tvær stórar akademískar ráðstefnur í Winchester í maí og ágúst 2009.

2007:   Stundakennari (adjunct instructor)  við Drew University Theological School.

  • Kenndi “Systematic Theology”, inngangsnámskeið í samstæðilegri trúfræði sumarið 2007.

2001-2002: Research Assistant, og teacher assistant í Drew University fyrir Dr. Catherine Keller.

1991-1992, 1986-1988 :  Grunnskólaleiðbeinandi (8.,9.,10. bekk)

• Kenndi íslensku, dönsku og kristinfræði við grunnskólana á Suðureyri og í Bolungarvík.

Og svo hef ég kennt fermingarfræðslu í rúma tvo áratugi.