Doktorsritgerð

Abyss of God:  Flesh, Love and Language in Paul Tillich. Drew University, Madison, NJ, USA, 2007, útgefin í rafrænum gagnagrunni UMI Digital Dissertations og í vinnslu til bókaútgáfu. Gunnar Kristjánsson ritaði greinargóðan ritdóm um ritgerðina í Ritröð Guðfræðistofnunar 32, 2011 sem gefur góða mynd af innihaldinu. Ritgerðin fjallar um guðshugtakið hjá Paul Tillich sem hann tekur úr kristnum miðaldadul. Saga djúpsins í kristinni hefð er rakin í ritgerðinni gegnum þýsku mystíkina og nýplatónsku hefðina og lesin með gleraugum femínískra og póststrúktúralskra kenninga.