Í ættinni minni má finna skipasmiði, húsfreyjur, bændur, ráðskonur og verkakonur. Ásmundur langalangafi minn í Vindheimi var meðhjálpari í Norðfjarðarkirkju og Halldór sonur hans var forsöngvari. Einhvern tímann var mér sagt að Ásmundur hafi þráð það að einhver afkomandi hans yrði prestur og ég er sú eina af hans afkomendum sem hef gert það. Loftur langafi minn í Haukholtum var forsöngvari í Tungufellskirkju.
Í beinan kvenlegg hljómar ættartala mín svona:
Sigríður dóttir Rögnu Guðríðar, dóttur Rúnu Vigdísar, dóttur Guðríðar, dóttur Andríu.
- Ragna mamma mín er f. 1941 í Reykjavík og alin upp í Laugarneshverfinu. Hún hefur starfað sem sölustjóri og heildsali í Reykjavík og húsfreyja í Reykjavík, á Seltjarnarnesi, Kópavogi og í Garðabæ. Hún sat í sóknarnefnd Seltjarnarnessóknar um tíma.
- Amma mín Rúna Vigdís var Halldórsdóttir. Hún var fædd 1916 í Norðfirði og var húsfreyja í Reykjavík og á Seltjarnarnesi.
- Guðríður Hjálmarsdóttir langamma mín var fædd í Vestmannaeyjum 1884 og var húsfreyja í Vindheimi í Norðfirði.
- Andría Hannesdóttir langalangamma mín var fædd í Vestmannaeyjum 1857 og var húsfreyja í Kuðungi í Vestmannaeyjum.
En ég á líka fleiri ættmæður uppi í erminni. Ég byrja á þeim og tel síðan upp afana á eftir:
Sigríður, dóttir Rögnu Guðríðar, dóttur Rúnu, dóttur Halldórs, sonar Þórunnar.
- Þórunn Halldórsdóttir, langalangamma mín var fædd í Skorrastaðasókn í Norðfirði 1848. Hún var húsfreyja á Karlsstöðum og í Vindheimi í Norðfirði.
Sigríður dóttir Rögnu Guðríðar, dóttur Bjarna Þórðar, sonar Sigríðar Petreu, dóttur Ragnheiðar:
- Sigríður Petrea Bjarnadóttir, langamma mín dó rúmum mánuði áður en ég fæddist. Ég heiti eftir henni og í höfuðið á annarri langömmu minni. Hún var fædd í Reykjavík 1886 og starfaði sem verkakona í Reykjavík.
- Guðrún Ragnheiður Snorradóttir, langalangamma mín var fædd í Kaupangssókn í Eyjafirði 1863 og var húsfreyja í Reykjavík.
Sigríður, dóttir Rögnu Guðríðar, dóttur Bjarna Þórðar, sonar Halldórs, sonar Ólafíu.
- Ólafía Þórarinsdóttir langalangamma mín var fædd í Auðsholti, Árn. 1863 og var húsfreyja í Arnarholti, Hrauntúni í Úthlíðarsókn og síðan ráðskona í Reykjavík.
Sigríður dóttir Guðmars Eyjólfs, sonar Jónínu Sigurlilju, dóttur Sigríðar Þorbjargar, dóttur Guðríðar.
- Jónína Sigurlilja Ásbjörnsdóttir amma mín var fædd í Hábæ á Miðnesi 1910 og ólst upp í Sólheimum í Sandgerði. Hún var húsfreyja í Reykjavík og síðar Kópavogi.
- Sigríður Þorbjörg Snorradóttir er hin langamman sem ég ber nafn af. Ég var borin til hennar á elliheimilið í skírnarkjólnum og hún dó þegar ég var á öðru ári. Sigríður var fædd í Miðkoti í Miðneshreppi 1881 og var húsfreyja í Sólheimum Sandgerði.
- Guðríður Einarsdóttir langalangamma mín fæddist 1860. Hún var bústýra í Miðkoti í Miðneshreppi og síðar húsfreyja á Leifsstöðum í Bergstaðasókn í Húnavatnssýslu.
Sigríður dóttir Guðmars Eyjólfs, sonar Jónínu Sigurlilju, dóttur Ásbjörns, sonar Guðrúnar.
- Guðrún Sveinbjörnsdóttir langalangamma mín var fædd í Stóruvallasókn í Rangárvallasýslu 1814. Hún var húsfreyja í Nýjabæ í Miðneshreppi.
Sigríður dóttir Guðmars Eyjólfs, sonar Magnúsar, sonar Kristínar, dóttur Maríu Amalíu.
- Kristín Valgerður Magnúsdóttir langamma mín var fædd á Galtafelli í Hrunamannahreppi 1866. Hún var húsfreyja í Haukholtum í Hrunamannahreppi.
- María Amalía Thomsen, langalangamma mín var fædd í Reykjavík 1827. Hún var húsfreyja í Skollagróf og á Galtafelli í Hrunamannahreppi.
Sigríður dóttir Guðmars Eyjólfs, sonar Magnúsar sonar Lofts, sonar Guðrúnar.
- Guðrún Loftsdóttir, langalangamma mín var fædd í Stóra-Núpssókn 1838. Hún var húsfreyja í Haukholtum í Hrunamannahreppi.
Og svo eru það afarnir mínir, langafar og langalangafar. Nú byrja ég á beina karlleggnum:
Sigríður, dóttir Guðmars Eyjólfs, sonar Magnúsar, sonar Lofts, sonar Þorsteins.
- Guðmar Eyjólfur Magnússon faðir minn er fæddur í Reykjavík 1941. Hann hefur starfað sem skrifstofumaður og stórkaupmaður í Reykjavík og búið í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi og Garðabæ. Pabbi sat lengi í bæjarstjórn Seltjarnarness og um tíma var hann forseti bæjarstjórnar.
- Magnús Loftsson afi minn var fæddur í Haukholtum í Hrunamannahreppi 1908. Hann var leigubílsstjóri á Hreyfli og bjó í Reykjavík og í Kópavogi. Sem ungur maður hafði Maggi afi sérleyfi úr hreppunum til Reykjavíkur og hann keyrði líka vörubíla um tíma.
- Loftur Þorsteinsson langafi minn var fæddur í Haukholtum 1868. Hann var bóndi í Haukholtum.
- Þorsteinn Eiríksson langalangafi minn var fæddur í Haukholtum 1836. Hann var bóndi í Haukholtum.
Sigríður dóttir Guðmars Eyjólfs, sonar Magnúsar, sonar Kristínar, dóttur Magnúsar.
- Magnús Þórðarson, langalangafi minn var fæddur í Steinsholti, Gnúpverjahreppi 1813. Hann var bóndi í Galtafelli og Skollagróf.
Sigríður dóttir Guðmars Eyjólfs, sonar Jónínu Sigurlilju, dóttur Ásbjörns sonar Páls.
- Ásbjörn langafi minn var fæddur í Rembihnút í Miðneshreppi 1883. Ásbjörn langafi var smiður í Sólheimum í Sandgerði og Ásabraut í Sandgerði er kennd við hann.
- Páll langalangafi minn var fæddur í Jónskoti í Háfssókn, Rang. 1850 og gerðist síðan bóndi í Rembihnút í Miðneshreppi, síðar Nýjabæ. Páli þótti víst nafnið á bænum sínum svo ljótt að hann breytti nafninu.
Sigríður dóttir Guðmars Eyjólfs, sonar Jónínu Sigurlilju, dóttur Sigríðar Þorbjargar dóttur Snorra.
- Snorri Snorrason langalangafi minn var fæddur að Nesjum í Miðneshreppi 1842. Hann var bóndi í Klöpp og sjómaður í Keflavík.
Sigríður dóttir Rögnu Guðríðar dóttur Bjarna sonar Halldórs sonar Þórðar.
- Bjarni Þórður Halldórsson afi minn var fæddur í Reykjavík 1906. Hann vann sig upp úr sárri fátækt og gerðist stórkaupmaður í Reykjavík.
- Halldór Þórðarson langafi minn var fæddur á Torfastöðum, Árn. 1882. Hann var verkamaður í Reykjavík.
- Þórður Halldórsson langalangafi minn var fæddur í Torfastaðasókn 1840. Hann var bóndi í Arnarholti og Hrauntúni í Úthlíðarsókn.
Sigríður dóttir Rögnu Guðríðar, dóttur Bjarna sonar Sigríðar Petreu, dóttur Bjarna.
- Bjarni Sigurðsson langalangafi minn var fæddur í Lundarsókn, Borg., 1857. Hann var sjómaður í Reykjavík.
Sigríður dóttir Rögnu Guðríðar, dóttur Rúnu Vigdísar, dóttur Halldórs, sonar Ásmundar.
- Halldór Ásmundsson langafi minn var fæddur í Norðfirði 1858. Hann var sjómaður í Vindheimi í Norðfirði.
- Ásmundur Jónsson langalangafi minn var fæddur í Skorrastaðarsókn í Norðfirði 1850. Hann var útvegsbóndi á Karlsstöðum og í Vindheimi.
Sigríður dóttir Rögnu Guðríðar, dóttur Rúnu Vigdísar, dóttur Guðríðar, dóttur Hjálmars.
- Hjálmar Ísaksson langalangafi minn var fæddur í Vestmannaeyjasókn 1860. Hann var skipasmiður á Kuðungi í Vestmannaeyjum.