Hjartaspjöld og mannauður 2

Starfsmannastefnan er óendanlega mikilvæg og við eigum að flagga henni, glíma við hana, uppfæra hana og fara eftir henni. Starfið er til vegna boðskaparins og stjórnsýslan er til svo að starfið sé gott. Ég tel að það eigi að vera forgangsmál nýs biskups að endurskoða starfsmannastefnuna í samtali við þau sem þjóna í kirkjunni. Í þetta skiptið þurfum við að láta það fylgja með hvernig stefnunni verði best framfylgt. More…

Paradís Reply

Og því er Paradís útópía, enginn staður og allur staður. Hún er allur staður vegna þess að frumþarfirnar eru okkur mikilvægar. Vatnið, andardrátturinn, fæðan, líkaminn eru undirstaða þess að við getum lifað heilbrigðu lífi. Og við gerðum vel í því á þessari föstu að velta því fyrir okkur hversu fá okkar hafa aðgang að slíkum gæðum. Það eru svo margir sem hafa helsta tengingu við náttúruna í óhreina pollinum á götunni, svo margir sem ekki eiga vatn og mat eða búa við sæmilegt öryggi. Í samanburði við þorra mannkyns búum við á Íslandi í Paradís, eða að minnsta kosti eins nálægt hliðinu sem engillinn gætir eins og kostur er. Paradís er hinn altæki staður vegna þess að öll látum við freistast eins og konan sem heitir Líf og maðurinn sem heitir Jörð. More…

Búrlyklar biskupsins 1

Þegar húsfreyjan hefur búrlyklana bera sig allir upp við hana og reyna að hafa áhrif á það hvernig hún skammtar á askana. Einn er askur æskulýðsstarfsins, annar askur fræðslustarfsins og sá þriðji sérþjónustunnar, í þann fjórða fer þjónustuþörfin á landsbyggðinni. Við getum öll pirrað okkur á húsfreyjunni og hvernig hún skammtar, flestir telja hana setja of lítið í einn askinn og vilja fá meiri skerf. Margir upplifa höfnun og reiði vegna þess hvernig skammtað er.

Hið nýja frumvarp gerir ráð fyrir því að húsfreyjan skili búrlyklunum á borðið og að heimilismenn verði sjálfir að ákvarða matarskammtinn á lýðræðislegan hátt og þannig að matarforðinn endist út veturinn. Getum við það sem fólk borið til frelsis? More…