Prédikanir og pistla sem ég hef birt er að finna á http://www.tru.is með því að smella hér. Paul Tillich sagði eitt sinn að hinn kristni boðskapur gæti veitt svar við hinum djúpu tilvistarspurningum daglegs lífs. Sumar af þessum prédikunum fjalla um umhverfisguðfræði, aðrar um kynferðislegt ofbeldi og jafnrétti, pólitík og kirkju, einelti, aðstæður eldri borgara, ofbeldisverkin í Útey 2011, dulrænt flæði og vatnsbúskap. svo og samband kirkju og skóla. Þannig eru spurningar tilvistarinnar íhugaðar í ljósi hinna kristnu tákna.