Hvers vegna er svo mikilvægt að ráðningarferli hjá hinu opinbera fari fram fyrir opnum tjöldum? Er það kannski óþarfa vesen, forvitni og sparðatíningur að vera að heimta þessi nöfn?Almenningur hefur ekki aðgang að umsóknargögnum vegna ráðningar í opinberar stöður af tillitssemi við þau sem sækja. Hins vegar hefur almenningur rétt á upplýsingum um nöfn umsækjenda vegna sjónarmiðsins um opna stjórnsýslu. Með því að upplýsa um þau sem sækja um stöður er ráðningarferlið haft eins opið og kostur er. Þannig getur almenningur haft skoðun og upplýsingar um ráðningar á vegum hins opinbera og veitt þeim aðhald sem sýsla með opinbert fé.Almenningur og umsækjendur eiga rétt á því að umsóknarferlið sé réttlátt og að hæfasti umsækjandinn sé valinn í hvert sinn. Það verður best gert með gagnsæi. More…
Tag Archives: gagnsæi
Upplýsingalög og mannaráðningar hjá þjóðkirkjunni 1
Stjórnsýsla þjóðkirkjunnar á að vera til eftirbreytni og þess vegna er ég sérstaklega glöð yfir því að staða biskupsritarans skuli hafa verið auglýst. Umsóknarfrestur rann út 8. júlí og nú er kominn sá 18. júlí. Mig er farið að lengja eftir því að sjá hverjir sóttu um stöðuna. More…