Í orþodoxakirkjum, rómversk-kaþólsku kirkjunni og fjölmörgum mótmælendakirkjum mega konur ekki gegna vígðri þjónustu. Þess vegna er það svo óumræðilega gleðilegt þegar kirkja opnar þeim allar dyr, heimilar þeim að vera sameiningartákn kirkju sinnar og leggur þeim lykla og mannaforráð í hendur. Húrra! Lifi jafnréttið! Til hamingju Solveig Lára og kirkjan öll! More…
Tag Archives: Hólar
Biskupar og vígslubiskupar 1
Það er með þessari virku tilsjón sem að kirkjan verður til aftur og aftur. Af því að kirkjan er fólk. Hvert og eitt okkar er að vinna gott starf á sínum stað. Við loðum saman á líminu sem er Kristur, líka hefð og sögu, sem er undirstrikuð með stöðunum sem vígslubiskuparnir sitja á og vaka yfir. En við þurfum líka að loða saman á yfirsýn biskupanna sem koma í kaffi, skoða steypuskemmdir og kaleika, gleðjast yfir því sem gert er vel og ala önn fyrir þeim sem eru þreyttir og lúnir og leiðir á batteríinu sem þjóðkirkjan getur stundum orðið. Þessi tilsjón er ekki eins manns verk. More…