marygrail

María Magdalena- lærisveinninn sem Jesús elskaði? Reply

Ég er dálítið heilluð af þeirri hugsun að lærisveinninn sem Jesús elskaði sé óræður og að í versinu felist orðaleikur. Í þeim orðaleik læðist María Magdalena inn og út úr hlutverkinu í öllum sínum gervum. Guðspjallið um lærisveininn sem Jesús elskaði færir okkur boðskap sem er alger andstæða þessarar áherslu á einangrun lands, þjóðar, menningar og trúar sem fram kom í gjörðum og atburðum í Útey. Ef Jesús elskar alla og allir geta verið lærisveinninn sem Jesús elskaði þá elskar Jesús án tillits til litar, kynþáttar, þjóðernis, trúarbragða, kynhneigðar og kynferðis. More…

Hellubæjarbækurnar Reply

Hellubæjarbækurnar eru herragarðssögur eftir sænsku skáldkonuna Margit Söderholm (1905-1986) og í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég kynntist þeim fyrst á bókasafni Seltjarnarnness sem unglingur og hef lesið þær með reglulegu millibili allar götur síðan. Ég hef líka smám saman verið að safna bókunum. Í dag áskotnaðist mér síðasta bókin í safnið og afréð af því tilefni að skrifa pistil um þessar uppáhaldsbækur. Vera má að pistillinn lokki einhvern til að lesa þessar skemmtilegu sögur, ég get óhikað mælt með þeim. More…