Kynningarfundir vegna biskupskjörs Reply

Ég er mjög ánægð með að þessir fundir skuli verða að veruleika og finnst að með þeim sé áfram haldið í átt til virkrar þátttöku, kynningar og lýðræðis, þótt auðvitað hefði ég viljað hafa fundina fleiri. Þetta er dýrmætt tækifæri til að sjá frambjóðendurna ræða saman og spyrja þá spurninga. More…

Valddreifing og valdefling í kirkjukosningum 2

Þess vegna tel ég mikilvægt að Þjóðkirkjan sinni lýðræðinu ekki bara með lagasetningum, heldur með því að móta nýjar hefðir. Þegar Kirkjuráð blæs til biskupskosninga á næstunni þyrfti að gera ráð fyrir einhverjum fjármunum til fundahalda um land allt. Ég legg til að haldnir verði fimm til sex kosningafundir á lykilsstöðum á landinu í marsmánuði og að Biskupsstofa leggi til fjarfundabúnað fyrir þá kjörmenn sem ekki geta komið á staðinn. Þessir fundir ættu að vera öllum opnir. Þar með væri það tryggt að einhver kynning færi fram á biskupsefnum um landið allt og að allir landsmenn sem áhuga hafa á biskupskosningunum geti fylgst með þeim. More…