Kirkjan tekur því þátt í umræðu um stöðu hjónabands og fjölskyldu, fóstureyðingar og jafnrétti, en ekki á þann hátt að kirkjan sé bara biskupinn. Kirkjan tekur til máls um þessi atriði þegar þau eru spegluð í guðfræðilegum arfi. Það gera guðfræðingarnir í prédikun, greinum, fyrirlestrum og boðun, en einnig konan í bakaríinu og maðurinn á traktornum. Kirkjan talar hvar sem siðferðið sem við praktíserum og siðfræðin sem er rannsókn okkar á siðferðinu fer fram. Hvar sem fólk veltir fyrir sér siðferðilegum álitamálum í ljós kristinnar trúar er kirkjan að tala en enginn einn talar fyrir hennar hönd. Nýlega hefur farið fram nokkur umræða um staðgöngumæðrun í tengslum við nýja löggjöf sem er í undirbúningi. More…
Tag Archives: kynverund
Friðriki Schram svarað 4
Í Fréttablaðinu 20. september 2011 birtist stutt grein eftir Friðrik Schram prest íslensku Kristskirkjunnar undir yfirskriftinni “Hafður fyrir rangri sök”. Í greininni átelur Friðrik Fréttablaðið fyrir að hafa skrumskælt boðskap sinn varðandi samkynhneigð. Ennfremur gagnrýnir Friðrik mannréttindastjóra Reykjavíkurborgar í grein sinni vegna nýafstaðinnar úthlutunar úr Kirkjubyggingarsjóði Reykjavíkurborgar, þar sem umsókn íslensku Kristskirkjunnar var hafnað á grundvelli afstöðu safnaðarins til samkynhneigðar. Í þessari grein hyggst ég hvorki svara fyrir ritstjórn Fréttablaðs eða mannréttindastjórann heldur beina sjónum mínum að þriðju umkvörtun greinarhöfundar, sumsé þeirri að hann og söfnuður hans verði fyrir fordómum, umburðarleysi og misrétti vegna afstöðu sinni til samkynhneigðar. More…