Um daginn var kona á leið frá Ráðhúsi Reykjavíkur yfir á Lækjargötu. Hún gekk hratt, því nóg var að gera og snaraðist fyrir hornið á milli Iðnó og safnaðarheimilis Dómkirkjunnar. Þar mætti konan grágæs, sem var á vappi í snjónum og virti fyrir sér umferðina. Andartak virtu gæsin og konan hvor aðra fyrir sér, svo leit gæsin undan því gæsum er ekki vel við að horfa djúpt í augun á mannfólkinu. Konan og gæsin tvístigu nokkra stund eins og tvær kurteisar konur í Kringlunni, önnur í svörtum skóm og kápu, hin í fiðurpels, með hvítt brjóst og í grábleikum stígvélum. Svo rak gæsin upp hvellt garg, konan vék til hliðar og horfði á gæsina taka flugið út á Tjörnina. More…