Month: febrúar 2012
-
Fermingartollar og fleiri tollar
Fermingargjaldið sker sig nokkuð úr öðrum tollum sem innheimtir eru vegna prestverka. Fermingargjaldið er vegna fermingarfræðslu sem sett er með skipulögðum hætti yfir allan veturinn. Þar er ekki um útkall að ræða heldur verk sem er unnið jafnt og þétt yfir veturinn.
-
Búrlyklar biskupsins
Þegar húsfreyjan hefur búrlyklana bera sig allir upp við hana og reyna að hafa áhrif á það hvernig hún skammtar á askana. Einn er askur æskulýðsstarfsins, annar askur fræðslustarfsins og sá þriðji sérþjónustunnar, í þann fjórða fer þjónustuþörfin á landsbyggðinni. Við getum öll pirrað okkur á húsfreyjunni og hvernig hún skammtar, flestir telja hana setja…
-
Siðfræði, kynverund, fjölskylda, jafnrétti
Kirkjan tekur því þátt í umræðu um stöðu hjónabands og fjölskyldu, fóstureyðingar og jafnrétti, en ekki á þann hátt að kirkjan sé bara biskupinn. Kirkjan tekur til máls um þessi atriði þegar þau eru spegluð í guðfræðilegum arfi. Það gera guðfræðingarnir í prédikun, greinum, fyrirlestrum og boðun, en einnig konan í bakaríinu og maðurinn á…
-
Tilkomi þitt ríki
Við endum bænina á lofgjörðinni sem kemur til okkar úr vídd vonarinnar. Þannig er hið kristna líf alltaf á mörkum tveggja vídda. Þess sem við lifum og víddar vonarinnar þegar Guðsríkið eitt ríkir, viljinn, brauðið, fyrirgefningin og frelsandi traustið. Stundum sjáum við bara í einni vídd. Stundum er mustarðskornið svo lítið, fjársjóðurinn týndur, perlan mött…
-
Austfirðingur verður til
Þetta fyrsta kvöld mitt á Austfjörðum fékk ég nokkra innsýn inn í hinar nýju aðstæður eftir álver. Ég fræddist um hinar miklu breytingar á samfélaginu eftir að álverið kom, hvernig prestsþjónustan nýtist og velferðarþjónustan á hinum stóra vinnustað. Fyrir umhverfisverndarsinnann Sigríði var athyglisvert að heyra „hina hliðina“ á hinum stóru umhverfismálum sem þjóðin hefur glímt…