Month: febrúar 2012
-
Undir Jökli
Ég var lengi að sofna þegar ég kom heim þótt dagurinn væri langur. Höfuð mitt var fullt af fólki, fólki sem hafði sýnt mér gestrisni og gefið mér tíma sinn í ólíkum heimsóknum yfir daginn. Ég hugsaði um sögu, guðfræði, erfiðleika, kirkjupólitík og starfsmannamál, svo að hausinn í mér brakaði. Mér finnst það það besta…
-
Kynningarfundir vegna biskupskjörs
Ég er mjög ánægð með að þessir fundir skuli verða að veruleika og finnst að með þeim sé áfram haldið í átt til virkrar þátttöku, kynningar og lýðræðis, þótt auðvitað hefði ég viljað hafa fundina fleiri. Þetta er dýrmætt tækifæri til að sjá frambjóðendurna ræða saman og spyrja þá spurninga.
-
Biskupsvígð kona
Getur ekki verið að tími sé að koma fyrir biskupsvígða konu á Íslandi? Ég leyfi mér að vona það.
-
Áskoranir og tækifæri kirkju og þjóðar í kreppu
Þjóðin hefur orðið fyrir stjórnmálalegu, siðferðilegu og efnahagslegu áfalli sem meðal annars lýsir sér í minnkandi trausti til stofnana og að kröfur um lýðræði, jafnrétti, gagnsæi og góða stjórnsýslu eru háværar. Inn í þennan veruleika þarf þjóðkirkjan að tala með sannfærandi hætti, með fyrirmyndar stjórnsýslu, með því að vera samkvæm sjálfri sér í jafnréttismálum og…
-
Trúarlíf mitt og fyrirmyndir
Ég held að uppáhalds fyrirmynd í trú sé Sigurþór móðurbróðir minn. Siggi frændi minn er einstaklega góður maður, blíður og hjartahlýr og trúin er eitthvað sem batt okkur snemma saman. Ég sé Jesú Krist í því hvernig hann umgengst menn og málleysingja.