Month: júlí 2012
-
Maríumessa Magdalenu: Kollekta og ritningarlestrar
Í dag er Maríumessa Magdalenu. Víða er Maríumessa haldin sem sérstakur messudagur og í lúthersku kirkjunni í Bandaríkjunum (ELCA) er notast við sérstaka kollektu og ritningarlestri ef Maríumessan er haldin.
-
Hellubæjarbækurnar
Hellubæjarbækurnar eru herragarðssögur eftir sænsku skáldkonuna Margit Söderholm (1905-1986) og í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég kynntist þeim fyrst á bókasafni Seltjarnarnness sem unglingur og hef lesið þær með reglulegu millibili allar götur síðan. Ég hef líka smám saman verið að safna bókunum. Í dag áskotnaðist mér síðasta bókin í safnið og afréð af því…
-
Hvers vegna upplýsingaskylda?
Hvers vegna er svo mikilvægt að ráðningarferli hjá hinu opinbera fari fram fyrir opnum tjöldum? Er það kannski óþarfa vesen, forvitni og sparðatíningur að vera að heimta þessi nöfn?Almenningur hefur ekki aðgang að umsóknargögnum vegna ráðningar í opinberar stöður af tillitssemi við þau sem sækja. Hins vegar hefur almenningur rétt á upplýsingum um nöfn umsækjenda…
-
Upplýsingalög og mannaráðningar hjá þjóðkirkjunni
Stjórnsýsla þjóðkirkjunnar á að vera til eftirbreytni og þess vegna er ég sérstaklega glöð yfir því að staða biskupsritarans skuli hafa verið auglýst. Umsóknarfrestur rann út 8. júlí og nú er kominn sá 18. júlí. Mig er farið að lengja eftir því að sjá hverjir sóttu um stöðuna.
-
Snorri í Betel og hatursorðræða
Er Snorri í Betel fórnarlamb ritskoðunar og skoðanakúgunar? Það er mikilvægt að standa vörð um tjáningarfrelsið. Það er jafnmikilvægt að greina orðræðu sem gerir lítið úr manneskjum vegna þess sem sjálfsmynd þeirra byggir á, trú, kynhneigð, kynferði, þjóðerni. Og þess vegna eru umræður um tjáningarfrelsi og hatursorðræðu mjög dýrmætir fletir á lýðræðisumræðu sem jafnframt leiðir…