AFGRUNN
Síða Sigríðar Guðmarsdóttur

Þín rödd er sótt í afgrunn iðurótsins,
en uppheimsloginn brennur þér um hvarm.

Einar Benediktsson, „Dettifoss“. Myndin er eftir Rögnvald Guðmundsson.

Nýjustu færslur

  • „Þegar biskupslaust er“

    Málið snýst þannig um tilfærslu frá varanlegu til tímabundins kirkjulegs embættis og kosningu sem kirkjuþing lét ekki fara fram í tæka tíð. Úrskurðurinn (eða öllu heldur starfsreglurnar og skorturinn á að kirkjuþing hafi framfylgt eigin starfsreglum með kosningum) hefur stefnt öllum stjórnsýsluákvörðunum biskupsembættisins síðasta árs í uppnám. Aðstæðurnar hljóta teljast einsdæmi í íslenskri kirkjusögu.

    Lesa meira

  • Ótti tröllanna

    Í þessum sagnaarfi birtist hin tvíræða staða tröllanna. Þau merkja svo margt samtímis. Þau standa fyrir risavaxna hættu sem að lífinu steðjar, stundum fyrir illsku og fordæðuskap, en líka fyrir jaðarsetningu þeirra sem ekki passa inn í venjulegt samfélag. Tröllin standa því á einhvern furðulegan, þverstæðukenndan hátt bæði fyrir vald og valdleysi, fyrir illt, gott…

    Lesa meira

  • Enginn þaggar þjóðkirkjuna

    Enginn þaggar þjóðkirkjuna meðan hún einbeitir sér að því að greiða götu þjóðarinnar, efla fólki von sem erfingjum eilífs lífs, leitar samstarfs og metur hið myrka jafnt hinu ljósa á hörundi okkar.

    Lesa meira

  • Takk, Tim Taylor!

    Á miðöldum fór fólk sem vildi vinna yfirbótarverk til Santíago de Compostela og Rómar. Í nútímanum fer fólk sem vill axla ábyrgð á vímuefnanotkun sinni í meðferð. Hvaða leiðir eru til handa fólki sem vill axla ábyrgð á öráreitni sinni, kynþáttafordómum og forréttindum?

    Lesa meira


Um mig

Sæl, Sælt, sæll!

Ég er dósent við Háskóla Íslands og kenni hagnýta guðfræði. Áður starfaði ég lengi sem prestur og prófastur, bæði á Íslandi og í Noregi. Ásamt kollegum mínum mennta ég verðandi fræðimenn, vígða þjóna framtíðarinnar og önnur þau sem vilja afla sér undirstöðumenntunar í kristinni trú og öðrum trúarbrögðum. Rannsóknir mínar rýna m.a. í iðkun kirkjunnar og tengsl hennar við samfélagið.

Starfsreynsla:

  • 2021- dósent í hagnýtri guðfræði við HÍ
  • 2014-2018 Prófastur Norsku kirkjunni, Suður-Hálogalands biskupsdæmi, Noregi
  • 2004-2014 Sóknarprestur í Grafarholti, Þjóðkirkjan og lektor í University of Winchester, Englandi (2007-2008)
  • 2000-2004 Doktorsnemi í Drew University, NJ og afleysingaprestur í ELCA, lúthersku kirkjunni í USA.
  • 1995-2001 Sóknarprestur í Ólafsfirði, Þjóðkirkjan
  • 1990-1995 Sóknarprestur í Staðarprestakalli í Súgandafirði, Þjóðkirkjan

ELDRI færslur

  • Skammviskubit og afnýlenduvæðing á jólum

    Ég sé börn á Gaza í hverri fjárhússenu á jólakortunum sem ég skrifa. Ég er með samviskubit og skammviskubit, svínviskubit, flugskömm, nagladekkjaskömm, loftslagskvíða, neysluskömm og heimshryggð. Ég þrái frið, frá ólgu undirdjúpanna, frá misskiptingu auðs og réttinda, frá hávaða stríðsvélanna. Ég veit ekki alveg hvar jólafriðinn er að finna.

    Lesa meira

  • Takk, Tim Taylor!

    Á miðöldum fór fólk sem vildi vinna yfirbótarverk til Santíago de Compostela og Rómar. Í nútímanum fer fólk sem vill axla ábyrgð á vímuefnanotkun sinni í meðferð. Hvaða leiðir eru til handa fólki sem vill axla ábyrgð á öráreitni sinni, kynþáttafordómum og forréttindum?

    Lesa meira

  • Innselir og útselir

    Innselurinn er með algengari dýrategundum alnetsins. Innselurinn (caelibatus involuntarium á latínu) heldur sig mest á rafrænu djúpsævi og er talinn hafa áhrif á súrnun sjávar. Brimlar eru í miklum meirihluta innsela. Sýna þeir urtum af sömu tegund lítinn áhuga, en leita fremur æxlunar með útselsurtum. Innselir eru styggari en útselir. Augu og eyru sitja hátt…

    Lesa meira