Ég hyggst gefa kost á mér til embættis biskups Íslands í kosningum næsta vor. Kirkjan þarf alltaf á siðbót að halda og framundan er þörf mikils umbótatímabils í Þjóðkirkjunni. Þessar breytingar hverfast um fjögur verkefni:
1. Samtal við þjóðina um trú og mannréttindi í fjölbreyttu samfélagi og að gera upp það sem aflaga hefur farið.
2. Styrkja tengslin við söfnuðina í landinu.
3. Dreifa valdi og efla lýðræði innan Þjóðkirkjunnar
4. Koma að breytingum á stjórnkerfi Þjóðkirkjunnar með endurskipulagningu stofnana, öflugri starfsmannastefnu og gagnsærri stjórnsýslu.
Ég mun gera ítarlegri grein fyrir þessum málefnum á heimasíðu minni www.sigridur.org á næstunni og býð ykkur að fylgjast með með því að ýta á RSS takkann. Hér á síðunni má líka finna ýmsar góðar upplýsingar um mig.
Mikil og vönduð stefnumótunarvinna fór fram í Þjóðkirkjunni árið 2003. Endurskoða þarf stefnumótunina í takt við nýjar aðstæður og hrinda henni í framkvæmd. Þessar breytingar geta gengið í gegn á fimm árum og ég mun beita mér fyrir því að kosið verði að nýju innan sex ára til biskups Íslands þegar lútherska kirkjan hefur fagnað 500 ára afmæli siðbótarinnar.
Þjóðkirkjan er mikilvægt afl í íslensku samfélagi og ég vil leggja mitt að mörkum til þess að hún þroskist í takt við nýja tíma. Til þess þarf táp og fjör, heilindi og hugrekki. Ég gef kost á mér með þessi gildi að leiðarljósi.
Kær kveðja, Sigríður
Færðu inn athugasemd